mánudagur, september 01, 2008

Kom heim í kvöld eftir frábæra helgi í Barðastrandarsýslum. Lögðum upp á laugardagsmorgun frá Flókalundi upp úr kl. 10.00 og hlaupi var létt rúmlega 17.00 við Klett í Gufudalssveit. 65 km. leggur og Klettsháls. Gistum í Djúpadal. Hófum hlaup að nýju kl. 9.00 við Klett og lukum hlaupi kl. 16.00 við Bjarkarlund. 60 km leggur og tveir hálsar, Ódrjúgsháls og Hjallaháls. Samtals 125 km. Allt gekk upp sem ætlað var. Magnaðir dagar. Betri skýrsla á morgun.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir frábæra hlaupa-helgi. Ég er enn að jafna mig eftir þetta ævintýri, sérstaklega er arnarunginn í holunni í huganum. Einhverntíma skal þetta endurtekið.
kv. Jóhanna Eiríksd.