miðvikudagur, september 10, 2008

Sex tíma hlaupið verður á laugardaginn. Það byrjar kl. 10.00 við grasflötina í elliðaárhólmanum. Þriggja tíma hlaupið hefst kl. 13.00 á sama stað. Hlaupunum lýkur á sama tíma eða kl. 16.00. Þeir sigra sem hlaupa lengst í hvoru hlaupi fyrir sig á tilsettum tíma. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum hlaupum eru vinsamlegast beðnir um að láta vita af sér með pósti á gunnlaugur@samband.is. Nauðsynlegt er að vita fjöldann nokkuð nákvæmlega vegna undirbúnings.

Tók morgunhlaup í morgun og síðan Ívar seinnipartinn, 15° og hraðinn upp í 6.8. Sána á eftir. Vel heppnað.

Engin ummæli: