þriðjudagur, maí 22, 2012
Árni Johnsen vakti nokkra athygli fyrir skömmu þegar hann flutti
álfastein út til Vestmannaeyja. Nú ætla ég ekki að segja um hvort álfar
hafi verið í steininum eða ekki, á því hef ég ekki vit eða þekkingu. Á
hinn bóginn er ég viss um að það er eitthvað til í kringum okkur sem
við geetum ekki skilgreint eða sagt hvað er. Um það eru til fjölmörg
dæmi. Mér er t.d. sagt að á einni jörð í hreppnum geri síðasti bóndinn
svo ákveðið vart við sig að þar geti ekki nokkur maður gist. Ekki ætla
ég að sanreyna það. Þa var lengi haft á orði hérr i denn tíð að það væri
reimt á Hálfdán, fjalllveginum milli Tálkafjaðar og Arnarfjarðar. Ég
þekkti bílstjóra sem sögðust aldrei fara þar einir yfir næturlagi.
Haukur bróðir var á jarðýtu ræktunarsambandsins þar vestra á árunum
fyrir og eftir 1970. Hann fór víða um héraðið og vann hjá bændum eftir
því sem verkefni féllu til. Einu sinni sem oftar þurfti hann að fara
norður í Arnarfjörð. Það var unnið í vaktavinnu á vélinni. Sá sem vann á
móti honum lagði af stað á vélinni norður og Haukur átti að taka við
honum undir nóttina. Þegar Haukur mætti á vaktna þá sá hann sér til
nokkurrar undrunar að vélin var komin miklu styttra en hann hafði búist
við. Hún stóð við Ketilseyrarána við vegamótin upp á Hálfdán í
Tálknafirðinum. Þar svaf ýtumaðurinn í vélinni. Haukur tók svo við
vélinni en kunni ekki við að spyrja hverju sætti að vélin var ekki komin
lengra. Hann keyrði svo sem leið lá norður yfir Hálfdán. Að áliðinni
nótt, þegar hann var kominn norður yfir kjöl, þá stoppaði hann og fékk
sér kaffisopa. Eftir kaffidrykkjuna helltist yfir hann svefn og hann
dormaði í sætinu á vélinni. Þegar hann vaknaði eftir skamma stund þá brá
honum heldur betur. Á honum lá slíkt farg að hann gat ekki hreyft legg
né lið. Honum var haldið í einhverjum heljargreipum á þann hátt að hann
gat sig hvergi hrært. Hann hafði heyrt að ráð við slíkar aðstæður væri
að reyna að hreyfa eitthvað og þá myndi farginu verða létt af honum.
Hann gat að lokum hreyft annað augnlokið. Þar á eftir gat hann hreyft
hitt augnlokið. Síðan losnaði um fleiri líkamsparta, hann gat hreyft
fingur og loks fætur. Þá fannst honum að farginu létti og það væri eins
og hann lyftist upp í sætinu. Hann heyrði þegar réttist úr svampinum.
Honum var nokkuð brugðið og ók sem hraðast norður af heiðinni og bar
ekki til frekari tíðinda í þessari ferð. Hann sagði okkur frá þessu á
sínum tíma man ég eftir en hann minntist ekki á þetta við hinn
ýtumanninn. Leiðir þeirra skildu svo skömmu síðar og þeir hittust ekki
fyrr en fyrir þremur árum síðan. Þá kom fyrrum vinnufélagi hans í
heimsókn upp að Hvanneyri og þeir rifjuðu upp gamla tíma ýtunni fyrir
vestan og ýmislegt sem minnisvert var frá þessum árum. Þá spurði Haukur
hann að því sem hann hafði langað til að gera í tæp 40 ár: Hvers vegna
hann hafði stoppað við afleggjarann upp á Hálfdán á sínum tíma en ekki
haldið á fjallið? Það stóð ekki á svari. Það skal ég segja þér sagði
vinnufélaginn gamli. Síðan kom saga af ferð hans yfir Hálfdán á jarðýtu
sem var nákvæmlega eins og upplifun Hauks í sinni ferð. Honum hafði
orðið svo brugðið við þessa reynslu að hann ákvað að hann skyldi aldrei
fara aftur einn yfir Hálfdán á jarðýtu. Því stoppaði hann við vegamótin
og lagði sig frekar en að halda á fjallið. Nýliðinn fékk svo að tölta á
ýtunni yfir Hálfdán á vit hins óþekkta. Svona er þetta. Ég veit að þetta
er rétt efftir haft en merkilegast var að um 40 árum síðar skyldi saga
vinnufélaga Hauks koma fram. Það er best að fullyrða ekki neitt um þessi
mál annað en að það er ýmsilegt til sem maður getur ekki skýrt.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli